Umhverfisstefna Dýrabæjar ehf Virðing fyrir umhverfi okkar, dýrum og náttúru landsins er okkur hjartans mál og því leggjum við áherslu á að umgangast hvort tveggja af virðingu.Þess vegna ætlum við að vera í fararbroddi með náttúrulegar, umhverfisvænar og aukefnalausar vörur fyrir gæludýr og jafnframt að uppfylla gildandi lög og reglugerðir á sviði umhverfismála. Áherslur Dýrabæjar í umhverfismálum eru: · að vera í fararbroddi með náttúrulegar, umhverfisvænar og aukefnalausar vörur fyrir gæludýr · að uppfylla kröfur í lögum og reglugerðum um umhverfismál · að flokka allan úrgang frá fyrirtækinu · að nota eingöngu vistvæn hreinsiefni þar sem því verður við komið · að vera meðvituð um umhverfismál almennt · að kappkosta að hafa snyrtimennsku í fyrirrúmi og vera öðrum til fyrirmyndar í þeim efnum · að vera dýravænn staður þar sem áhersla er lögð á vellíðan gæludýra í lifandi og skemmtilegu umhverfi · að vera eigendum gæludýra til ráðgjafar um heilnæmar umhverfisvænar vörur, sem styðja við almennt heilbrigði þeirra og vellíðan · að hvetja eigendur gæludýra til þrifnaðar í kringum dýrin og gæta þess að þau valdi ekki óþrifnaði með umgengni sinni · að umhverfisstefnan og framkvæmd hennar sé sýnileg almenningi og verði þannig öðrum hvatning til að leggja sitt af mörkum, til að vernda umhverfið fyrir komandi kynslóðir. Reykjavík, 15.07.2003 Guðríður Vestars
|


Virðing fyrir umhverfi okkar, dýrum og náttúru landsins er okkur hjartans mál og því leggjum við áherslu á að umgangast hvort tveggja af virðingu.


